sksiglo.is | Norðlenskar fréttir | 13.01.10 | 07:00 | Finnur Yngvi Kristinsson | Athugasemdir (0)
Framkvæmdir við Hannes Boy Café í fullum gangi
Í gærmorgun brá SKSigló sér í heimsókn til Rauðku en framkvæmdir við Hannes Boy Café eru nú í fullum gangi.
Fyrirtækið hefur nú hafist handa við að klæða útveggi og slá upp milliveggjum á veitingastaðnum og breytir það innviðum staðarins mikið sem nú er farinn að fá á sig sína réttu mynd. Stefnt er á að Hannes Boy Café opni dyr sínar um miðjan maí og er því nóg verk fyrir höndum hjá fyrirtækinu en Rauðka mun einnig opna þjónustumiðstöðina í Danna á sama tíma.
























