föstudagur 18. maí 2012 06:26

SKSiglo.is

Fyrirtækið DataMarket hefur hleypt af stokkunum gagnatorgi sínu á vefslóðinni DataMarket.com Gagnatorgið tekur saman töluleg gögn frá ýmsum opinberum aðilum og einkafyrirtækjum og gerir þau aðgengileg á einum stað með samræmdum eiginleikum, svo sem leitarmöguleikum, samanburði, tengingum við fréttaefni og aðra viðburði, og niðurhali gagna til dæmis til notkunar í Excel.

Fréttir

Glæsilegur vefur - Gagnatorgið DataMarket hleypt af stokkunum

Fyrirtækið DataMarket hefur hleypt af stokkunum gagnatorgi sínu á vefslóðinni DataMarket.com

Gagnatorgið tekur saman töluleg gögn frá ýmsum opinberum aðilum og einkafyrirtækjum og gerir þau aðgengileg á einum stað með samræmdum eiginleikum, svo sem leitarmöguleikum, samanburði, tengingum við fréttaefni og aðra viðburði, og niðurhali gagna til dæmis til notkunar í Excel.

Í gagnatorginu er í dag að finna margvísleg gögn, meðal annars frá Hagstofu Íslands, Seðlabanka Íslands, Vinnumálastofnun, Fasteignaskrá, Orkustofnun og Ferðamálastofu. Að auki eru þar gögn frá Ríkislögreglustjóra og töluleg gögn úr skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis.

Öll þessi gögn eru nú aðgengileg netnotendum án endurgjalds á gagnatorginu DataMarket.

Að sögn fyrirtækisins er þar að finna meira en 2.500 gagnasett frá framangreindum aðilum og samanlagt meira en sjö milljón tímaraðir um allt á milli himins og jarðar. Sem dæmi um hin margvíslegu gögn sem er að finna á torginu má nefna: hitastig á Stykkishólmi, barnsfæðingar á mánuði frá 1853, atvinnuleysi iðnaðarmanna, raforkuframleiðslu með jarðvarma, útbreiðslu DVD spilara og kílóverð á súpukjöti svo fátt eitt sé nefnt.

Gögnin spanna nærri 450 ára tímabil, söguleg gögn allt frá því um aldamótin 1600 og spár sem ná fram til ársins 2050.

"Frá því í hruninu hefur mikið verið kallað eftir betra aðgengi að margvíslegum upplýsingum.", segir Hjálmar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri DataMarket. "Tími þess að taka ákvarðanir með maganum út frá tilfinningu er liðinn. Stjórnendur, stjórnmálamenn og reyndar almenningur allur sækist eftir því að taka betri ákvarðanir byggðar á bestu fáanlegu gögnum. Við teljum að gagnatorgið svari þessu kalli að nokkru leiti."

"Á DataMarket geta stjórnendur fyrirtækja flett upp mörgu því er lýtur að ytra rekstrarumhverfi fyrirtækja sinna. Þannig getur t.d. sá sem stendur í dekkjainnflutningi flett upp umferðartölum, innflutningi og nýskráningum á ökutækjum, eldsneytisverði, gengisupplýsingum og öðru því sem hefur áhrif á afkomuna. Allt á einum stað, þar sem kalla má þróun upp myndrænt og sækja svo gögnin sjálf til frekari úrvinnslu ef með þarf.", bætir Hjálmar við.

Gagnatorgið er aðgengilegt bæði á íslensku og ensku. Vefslóðin á íslensku útgáfuna er http://datamarket.com/is/



Deild

Framsetning efnis

home
fyrirspurnir
veftre
moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn