laugardagur 31. júlí 2010 14:09

SKSiglo.is

Rauðka hefur nú lokið við þau útiverk sem klára þurfti fyrir veturinn. Hellulagt hefur verið milli húsanna á Rauðkutorgi og lokið hefur verið að klæða Danna (nyrðra húsið) að utan ásamt því að sköpuð hefur verið jólastemmning á svæðinu. Fyrirtækið hefur nú snúið sér að því að gera húsin tilbúin að innan.  

Fréttir

Rauðka steypir gólfið í Hannes Boy Café

Hannes Boy Café. Ljósmyndari; Finnur Yngvi Kristinsson
Hannes Boy Café. Ljósmyndari; Finnur Yngvi Kristinsson

Rauðka hefur nú lokið við þau útiverk sem klára þurfti fyrir veturinn. Hellulagt hefur verið milli húsanna á Rauðkutorgi og lokið hefur verið að klæða Danna (nyrðra húsið) að utan ásamt því að sköpuð hefur verið jólastemmning á svæðinu. Fyrirtækið hefur nú snúið sér að því að gera húsin tilbúin að innan.

 

Á fimmtudaginn réðust starfsmenn Rauðku í að steypa gólfið í Hannes Boy Café með dyggri aðstoð Njarðar, Bás og Berg. Að sögn Rauðkumanna verður nú í beinu framhaldi hafist handa við að gera innviði veitingastaðarins tilbúið, en stefnt er að því að Hannes Boy Café opni dyr sínar næstkomandi vor. Samhliða mun fyrirtækið vinna að standsetningu Danna (bláa hússins) að innan, en stefnt er á að þar hefjist einnig rekstur næsta sumar.




Deild

Framsetning efnis

home
fyrirspurnir
veftre
moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn