laugardagur 31. júlí 2010 13:57

SKSiglo.is

Frétt dagsins er án efa viðbrögð sveitarstjórar Langanesbyggðar við óknyttum nokkurra ungra drengja í sveitarfélaginu sem munu hafa látið dólgslega að undanförnu og ógnað sveitungum sínum með ýmsum hætti. Sveitarstjórinn, Gunnólfur Lárussin, kallaði drengina á teppið og gerði við þá þann óvenjulega samning að ef létu þeir af ólátunum myndi hann í staðin kenna þeim box svo þeir finndu kröftum sínum fyrirstöðu í eitthvað annað en leiðindi. Þetta var snöfurmannlega gert hjá sveitarstjóranum og sannarlega óvænt viðbrögð við vanda af þessu tagi. Ég er þess fullviss að lausn sveitarstjórans mun verða árangursrík og öllum til góðs, jafnt drengjunum og þá ekki síður óttaslegnum íbúum Langanesbyggðar.

Fréttir

Svona á að taka á málum!

 Björn Valur Gíslason
Björn Valur Gíslason
Frétt dagsins er án efa viðbrögð sveitarstjórar Langanesbyggðar við óknyttum nokkurra ungra drengja í sveitarfélaginu sem munu hafa látið dólgslega að undanförnu og ógnað sveitungum sínum með ýmsum hætti. Sveitarstjórinn, Gunnólfur Lárussin, kallaði drengina á teppið og gerði við þá þann óvenjulega samning að ef létu þeir af ólátunum myndi hann í staðin kenna þeim box svo þeir finndu kröftum sínum fyrirstöðu í eitthvað annað en leiðindi. Þetta var snöfurmannlega gert hjá sveitarstjóranum og sannarlega óvænt viðbrögð við vanda af þessu tagi. Ég er þess fullviss að lausn sveitarstjórans mun verða árangursrík og öllum til góðs, jafnt drengjunum og þá ekki síður óttaslegnum íbúum Langanesbyggðar.Það mætti kannski grípa til álíka aðferða við endalausum strákslátum hér á Alþingi. Í stað þess að þingmenn atist hver í öðrum langtímum saman með endlausu masi, oft með engum sjáanlegum tilgangi öðrum en vera hver öðrum og þjóðinni allri til ama og leiðinda, mætti kannski bjóða þeim upp á að berja hvern annan bak við hús undir eftirliti sveitarstjórans í Langanesbyggð?
Sjálfur hefði ég örugglega haft gott af slíku á drengsárum mínum norður í Ólafsfirði á sínum tíma.  Það hefði án efa létt á mínum nánustu og móður mín blessunin hefði kannski átt náðugri daga en ég bauð henni oftar en ekki upp á.
Den tid, den sorg.


Deild

Framsetning efnis

home
fyrirspurnir
veftre
moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn