Skíðasvæðið er opið í dag 31. janúar

Velkomnar á skíði
Velkomnar á skíði

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið er mjög gott logn, frost 5 stig og heiðskírt, færið er einnig mjög gott troðinn þurr snjór frábært færi fyrir alla.

Við höfum útbúið lítinn gönguhring í Skarðdalsbotni að vestan.

Brekkur sem eru inn í dag eru T-brekka að hluta, Stálmasturbrekka, Þvergilið, brekka fyrir ofan Skíðaskála og það eru allar brekkur inn á Búngusvæðinu. Svæðið er búið að vera opið í 34 dag frá 5. desember.

Ps sólin kemur upp kl 11:00 á Búngutoppinn

Velkomin í fjallið starfsmenn





Þessi frétt / grein er prentuð af sksiglo.is