laugardagur 31. júlí 2010 14:06

SKSiglo.is

Frétta og ljósmyndavefur

Fróðleiksmolar - Tölvur

Notaðu alltaf nýjasta vafrann til að flakka um internetið, þeir sem eru í boði eru flestir ókeypis, meðal þeirra vinsælustu eru:

Mozilla FireFox vafrinn sem er góður og hentar flestum. Tengill til að hlaða niður þeim nýjasta er HÉR

Microsoft Internet Explorer, (IE) sá sem flestir nota. Tengill til að sækja hann er HÉR

XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX

Ég veit að flestir þekkja Google leitarvélina, en það eru færri sem vita um Google Desktop, og enn færri sem vita um leitarvél sem heitir Nano Search.  Ég hefi notað hvorutveggja í um ár og get ekki verið án þess ! Desktop geturðu valið úr þúsundum möguleika, og stjórnað að eigin geðþótta.
Meðal annars látið hann sýna þér póstinn þinn án þess að opna sjálft póstforritið, velja þá fréttamiðla sem þú villt láta sýna þér nýjustu fréttirnar og ótal margt fleira,

Og sá sem upphaflegi tilgangur minn var með þessari ábendingu á Nano Search, sem þú getur komið fyrir á Desktopinu þínu.
 Með Nano geturðu valið margar síður sem þú hefur áhuga á að leita af einstökum atriðum á, sem dæmi á vefnum http://www.sksiglo.is/ Þá leitar hún á mjög fljótvirkan hátt eftir viðkomandi textastreng, einu orði eða setningu innan gæsalappa. Og eins og með aðrar leitarvélar þá má skrifa hvaða orð eða setningu sem viðkomandi man eftir í texta sem leitað er af. Þú getur sem dæmi sett inn í viðkomandi reit leitarvélarinnar, strenginn "Hver og Hvað" eða “gamlar myndir” þá koma eftir augnablik allar síðurnar þar sem tiltekna setningu eða orð er að finna, alveg eins og á venjulegum á leitarvef, nema vélin leitar aðeins á www.sksiglo.is   Þú sækir Desktopið á http://desktop.google.com/   og þegar það er uppsett ferðu efst upp til vinstri og smellir á + merkið. Skrifar í leitarplássið orðið nano, smellir síðan á Nano Search gluggan sem þar kemur upp. Restin er sjálfvirk má heita.  Eins er hægt að sækja vélina hingað:
http://www.softpedia.com/get/Windows-Widgets/Widget-Miscellaneous/Nano-Search.shtml 

XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX

 

Ef þú ert með mynd á skjánum og þú sérð ekki alla myndina án tilfæringa, skaltu prófa að styðja á F11 á móðurborðinu. – þú getur einnig notað hjólið á músinni til að færa myndina upp eða niður, og eða “page-Up eða Page Down á lyklaborðimu, eða örvatakkana.
Það fer erfti því hvaða vafra þú ert að nota.

Þá er góður möguleiki að nota rúlluhjólið (skrunhjólið) á músinni, sé það fyrir hendi, það getur þurft að smella með hjólinu til að það virki. 

 

Ef þú villt prenta mynd af netinu, er gott ráð að opna ritvinnsluforritið þitt, Word eða forrit með samsvarandi möguleika. –
Stækka myndina sem þú ætlar að prenta frá internetinu í fulla stærð.
Smella með hægri músarhnappi á myndina og velja Copy Image ef þú notar FireFox eða Copy notirð IE og líma / pasta yfir í Wordinn.
Þar geturðu dregið myndina til, stækkað eða minnkað, og eða raðað mörgum myndum í sama skjal skoðað og eða prentað að því loknu.

Ef þú ert að leita eftir frétt eða frásögn sem komið hefur áður fyrir á vef mínum, það er eitthvað sem birt hefur verið frá 6. október til dagsins í dag. Þá eru þjár leiðir til að nálgast efnið:

  1. Nota leitarvélina á síðunni
  2. Smella á tengilinn neðst á forsíðunni "Skoða allar fréttir" og leita þar.
  3. Smella á þá dagsetningu á dagatalinu sem er á síðunni, ef þú veist nokkurn vegin hvenær viðkomandi efni var birt.
  4. Þá er kjörin og fljótvirk leit, að fara neðst á fréttasíðuna, smella á "Skoða allar fréttir" Þar geturðu smellt til dæmis á ákveðinn "Flokk"  - sem dæmi: Ef þú smellir á "Gömul blaðaskrif" þá kemur eingögu upp sá flokkur, sem hægt er að renna yfir.
==================================

explorer_392
Það er auðvelt að koma fyrir flýtihnöppum á stikunni (Links) á netvafranum þínum

Þú velur þá síðu sem þú villt hafa fljótlega tiltæka, merkir http://óskasíðan - smellir með hægri músahnappinum framan við http:// og dregur svæðið niður á svæði “Links” og sleppi músahnappi þar sem I táknið birtist, þú getur valið það svæði.
Og aftur með því að smella á “Links hnappinn” með hægri músatakka, geturðu valið af flettirammanum sem birtist, “Rename” og stytt nafnið að vild.

 

 

Deild

Framsetning efnis

home
fyrirspurnir
veftre
moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn